Eyðublöð
Hér er að finna eyðublöð RNF til tilkynninga á flugslysum, alvarlegum flugatvikum eða flugumferðaratvikum
- Eyðublað til tilkynningar á flugslysi eða alvarlegu flugatviki
- Eyðublað til tilkynningar á flugumferðaratviki
Þann 1. september 2004 tóku gildi ný lög um rannsókn flugslysa (lög nr. 35/2004). Í þriðja kafla laganna er meðal annars fjallað um tilkynningu um flugslys (11. grein) þ.e. að tilkynna beri flugslys og flugatvik, þar með talið flugumferðaratvik, til rannsóknarnefndar flugslysa án ástæðulausrar tafar. Þetta gildir um sérhvern þann sem um það veit og sama gildir um hvern þann sem finnur loftfar eða aðra hluti við aðstæður er benda til þess að flugslys hafi orðið. Sérstaka skyldu í þessu efni hafa Flugmálastjórn Íslands, stjórnendur loftfara, handhafar flugrekstrarleyfis og vaktstöð samkvæmt lögum nr. 25/1995, um samræmda neyðarsímsvörun.
Þann 19. janúar 2006 kom út reglugerð (nr. 53/2006) um tilkynningarskyldu flugslysa, alvarlegra flugatvika og atvika. Í 4. grein reglugerðarinnar er hnykkt á því að tilkynna beri til Rannsóknarnefndar flugslysa án tæðulausrar tafar. Jafnframt kemur það fram í 5. grein að tilkynna beri símleiðis, símanúmer 660-0336, en bakvakt er hjá RNF allan sólahringinn. Því er svo fylgt eftir með skriflegri skýrslu á þar til gerðu eyðublaði sem finna má hér að ofan. Skriflegu skýrslunni skal skilað inn til RNF við fyrsta hentugleika.
Þegar tilkynnt er um flugslys eða alvarlegt flugatvik með skriflegri skýrslu til RNF skal samkvæmt reglugerðinni jafnframt senda samrit, án viðauka, til Flugmálastjórnar Íslands en í viðaukanum er meðal annars óskað eftir ítarlegri lýsing á sögu viðkomandi flugs ásamt áliti flugstjórans á orsök og meðverkandi þáttum. Viðaukin er eingöngu ætlaður fyrir Rannsóknarnefnd flugslysa.
Samkvæmt ofangreindri reglugerð skal því fyrst og fremst tilkynna um slys eða alvarleg flugatvik (þar með talið flugumferðaratvik) símleiðis til RNF en önnur atvik til Flugmálastjórnar Íslands. Samkvæmt reglugerðinni er ekki ætlast til þess að önnur atvik séu tilkynnt til RNF.
