Fréttir

Þormóður heldur til starfa hjá ICAO

13 jan. 2012

Um áramótin lét Þormóður Þormóðsson, forstöðumaður RNF, af störfum hjá nefndinni. Þormóður ákvað að þiggja stöðu hjá Alþjóðarflugmálastofnunni (ICAO) í Montreal í Kanada. Þar mun hann hafa umsjón með málum er varða eftirlit og úttektir ICAO á rannsóknarnefndum flugslysa hjá aðildarríkum stofnunarinnar. ICAO er Þormóði ekki ókunn þar sem hann var hjá stofnuninni frá 2005 til 2010 þegar hann var í leyfi frá RNF.

Þormóður hóf störf hjá RNF árið 2001 og var formaður og rannsóknarstjóri nefndarinnar frá 2001 til 2004. Með nýjum lögum um rannsóknir flugslysa árið 2004 varð Þormóður forstöðumaður RNF.  

RNF þakkar Þormóði fyrir hans störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, hefur sett Þorkel Ágústsson sem forstöðumann RNF frá sama tíma en Þorkell hóf störf fyrir RNF árið 2002 og gengdi m.a. stöðu forstöðumanns í fjarveru Þormóðs á árunum 2005-2010.



Skjaldamerki Íslands

Þetta vefsvæði byggir á Eplica