Skýrslur

Ársskýrslur og rannsóknarskýrslur sem RNF hefur gefið út

Samkvæmt lögum um rannsókn flugslysa skal Rannsóknarnefnd flugslysa semja skýrslu un niðurstöðu rannsóknarinnar. Í skýrslunni skal meðal annars gerð grein fyrir orsök eða sennilegri orsök slyssins, auk þess skulu gerðar tillögur til úrbóta eftir því sem rannsókn gefur tilefni til. Þessar skýrslur eru nefndar rannsóknarskýrslur.

Á hverju ári gefur RNF út ársskýrslur með samantekt á því sem nefndin hefur fengist við á síðastliðnu ári. Hefð var fyrir því að árskýrslur voru sendar áskrifendum AIP en því var hætt árið 2002. Ársskýrslur er mögulegt að nálgast á skrifstofu RNF en þær eru prentaðar í takmörkuðu upplagi.

Samkvæmt lögum um rannsókn flugslysa skal skýrslum rannsóknarnefndar flugslysa ekki beitt sem sönnunargögnum í opinberum málum enda er markmið flugslysarannsókna að greina orsakaþætti flugslysa í því skyni einu að koma í veg fyrir frekari flugslys. Tilgangurinn er ekki að skipta sök eða ábyrgð.

 

 
 
HAFÐU SAMBAND · VEFTRÉ · ENGLISH VERSION
 

efnisyfirlit síðunnar