Áhöfnin var í sjónflugi til Sumburgh flugvallar er veðrið versnaði og flugu þeir í nálægð við klettabelti.
Jarðvari flugvélarinnar aðvaraði áhöfnina en flugstjórinn kaus að fylgja ekki "PULL UP" viðvörun frá jarðvaranum.
Áhöfnin hélt aðfluginu áfram og lenti athugasemdalaust á flugvellinum. Rannsóknin leiddi í ljós nokkra
rekstrarlega, þjálfunar, og mannlega þætti sem voru meðverkandi í röngum viðbrögðum áhafnarinnar. Tvær tillögur í
öryggisátt eru gerðar varðandi þjálfun áhafna og rekstrarlegt eftirlit Flugmálastjórnar Íslands með flugrekandanum.