Rannsóknarnefnd flugslysa í Bandaríkjunum (NTSB) hefur gefið út skýrslu um flugslys er varð þegar flugvél af gerðinni Cessna 310 hafnaði í sjónum um það bil 50 sjómílur vestur af Keflavíkurflugvelli. Flugslysið varð þegar flugmaður, sem var einn um borð, hugðist fljúga flugvél af gerðinni Cessna 310 frá seljanda flugvélarinnar í Bandaríkjunum til kaupanda hennar í Búlgaríu, nauðlenti í sjó um það bil 50 sjómílur vestur af Keflavíkurflugvelli. Rannsóknarnefnd flugslysa í bandaríkjunum (NTSB) hefur lokið málinu og telur að báðir hreyflarnir hafi misst afl en við rannsóknina tókst ekki að ákvarða hvers vegna.
Sjá nánar um líklega orsök á vef NTSB http://www.ntsb.gov/ntsb/GenPDF.asp?id=CHI08FAMS1&rpt=fi