Fréttir
Ráðning aðstoðarforstöðumanns RNF
Sturla Böðvarsson hefur ráðið Braga Baldursson flugvélaverkfræðing í stöðu aðstoðarforstöðumanns rannsóknarnefndar flugslysa frá 1.október 2005.
Bragi er með MS gráðu frá Virginia Polytechnic Institute Í Bandaríkjunum en áður hafði hann lokið BS gráðu í flugvélaverkfræði við Iowa State Universitiy í Bandaríkjunum
Síðastliðin tvö ár hefur Bragi gegnt stöðu deildarstjóra verkfræðideildar Icelandair Technical Services (ITS) sem sér um viðhald flugvéla Flugleiða.
Bragi Baldursson er í sambúð með Stina Tjelflaat og saman eiga þau tvö börn.

