Fréttir
Reglugerð um tillkynningarskyldu flugslysa, alvarlegra flugatvika og atvika
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 24. gr. laga nr. 35/2004 um rannsókn flugslysa og 47. gr., sbr. 145. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir og tók gildi þann 1. febrúar 2006. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 126/1998 um tilkynningarskyldu í flugi.
Með reglugerð þessari er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2003/42/ESB frá 13. júní 2003 um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem tekin var inn í XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2004 frá 23. apríl 2004 og aðlöguð að samningnum í samræmi við bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans.
Reglugerðina er að finna hér

