Fréttir
Reglugerð um rannsókn flugslysa tekur gildi í dag, 1. mars 2006
Samgönguráðuneytið hefur sett saman reglugerð nr. 80/2006 um rannsókn flugslysa og er það gert í framhaldi af lögum nr. 35/2004 um rannsókn flugslysa.
Lögin sem sett voru árið 2004 fólu í sér heildarendurskoðun á löggjöf um rannsókn flugslysa og var stjórnskipulagi flugslysarannsókna þá meðal annars breytt þar sem rannsóknarnefnd er nú skipuð þremur mönnum í stað fimm áður. Þá var skipaður sérstakur forstöðumaður sem annast daglegan rekstur og er jafnframt rannsóknarstjóri.
Með reglugerðinni er meðal annars tekið á hlutverki og ábyrgðasviði nefndarmanna og rannsakenda. Reglugerð þessi er sett samkvæmt 24. gr. ofangreindra laga um rannsókn flugslysa. Reglugerðin tekur gildi 1. mars 2006 og á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 852/1999 um rannsóknarnefnd flugslysa. Reglugerðina er að finna hér.

