Fréttir

TF-FMS hlekktist á í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli þann 11. janúar síðastliðin.

14.1.2007

Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar flugslys er varð þegar TF-FMS hlekktist á í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli þann 11. janúar síðastliðin. Flugvélin er af gerðinni Beech King Air B200.

Flugvélin hóf flugtak á flugbraut 13 kl 12:19 en þegar hún var að nálgast flugbrautarmót við flugbraut 06/24 hugðist flugstjóri flugvélarinnar hefja flugvélina á loft og varð þá var við að hún lét ekki að stjórn þar sem hún leitaði út fyrir flugbrautina. Flugstjórinn dró þá allt afl af hreyflum flugvélarinnar.

Við vettvangsrannsókn kom í ljós að flugvélin hafði ferðast á jörðu samhliða flugbrautinni og meðal annars rekist á rafmagnskassa og ljósabúnað flugvallarins. Á meðan flugvélin var að hægja ferðina beindi flugstjórinn flugvélinni aftur inná flugbraut 13 og stöðvaðist hún þversum á enda flugbrautarinnar. Él var yfir flugvellinum þegar flugslysið varð.

Í flugvélinni voru tveir áhafnameðlimir og sex farþegar og sakaði þá ekki en flugvélin er töluvert skemmd.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 
 
HAFÐU SAMBAND · VEFTRÉ · ENGLISH VERSION
 

efnisyfirlit síðunnar