Fréttir
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur gefið út skýrslu um Flugslys TF-FAD (Piper Tomahawk) þann 3. september 2006.
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur gefið út skýrslu um flugslys flugvélarinnar TF-FAD, sem er af gerðinni Piper Tomahawk, er varð þann 3. september 2006. Flugnemi og flugkennari voru í kennsluflugi við Hjalteyri í Eyjafirði og voru að æfa neyðarviðbrögð. Flugneminn tók upp vængbörð áður en aflgjafa var ýtt inn. Við það missti flugvélin hæð og lenti á túni. Í lendingunni rakst flugvélin í jörðina og steyptist fram yfir sig. Engin slys urðu á mönnum en flugvélin skemmdist talsvert. Nánari upplýsingar má finna í skýrslu um málið hér

