Fréttir

Alvarlegt flugatvik TF-CSB við Sumburgh flugvöll þann 11. júní 2006

12.3.2007

Rannsóknarnefnd flugslysa hefur endurútgefið skýrslu bresku rannsóknarnefndarinnar um alvarlegt flugatvik TF-CSB við Sumburgh flugvöll.
Áhöfnin var í sjónflugi til Sumburgh flugvallar er veðrið versnaði og flugu þeir í nálægð við klettabelti. Jarðvari flugvélarinnar aðvaraði áhöfnina en flugstjórinn kaus að fylgja ekki "PULL UP" viðvörun frá jarðvaranum. Áhöfnin hélt aðfluginu áfram og lenti athugasemdalaust á flugvellinum. Rannsóknin leiddi í ljós nokkra rekstrarlega, þjálfunar, og mannlega þætti sem voru meðverkandi í röngum viðbrögðum áhafnarinnar. Tvær tillögur í öryggisátt eru gerðar varðandi þjálfun áhafna og rekstrarlegt eftirlit Flugmálastjórnar Íslands með flugrekandanum.
Endurútgefnu skýrsluna má finna hér.
 
Skýrslu AAIB UK má finna hér.


Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 
 
HAFÐU SAMBAND · VEFTRÉ · ENGLISH VERSION
 

efnisyfirlit síðunnar