Fréttir
Alvarlegt flugatvik N3294P við Múlakot þann 1. ágúst 2007
RNF rannsakar alvarlegt flugatvik er varð þann 1. ágúst 2007 þegar N3294P sem er tveggja hreyfla flugvél af gerðinni Piper Apache PA-23 hlekktist á í snertilendingu á flugvellinum við Múlakot. Flugvélin hafnaði á flugbrautinni með nefhjólið í uppréttri stöðu og fóru báðar loftskrúfurnar í jörðina. Flugmaður ásamt tveimur farþegum voru um borð og sakaði þá ekki.

