Fréttir
Endurútgáfa skýrslu um flugatvik TF-FIR (Boeing 757-200) þann 11. janúar 2007.
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur endurútgefið skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa í Danmörku um flugatvik TF-FIR þann 11. janúar 2007. Í fluginu opnaðist lúga, sem hýsir neyðarrennu á vinstri hlið flugvélarinnar með þeim afleiðingum að neyðarrennan losnaði frá flugvélinni. Flugvélinni var lent heilu á höldnu á Kastrup flugvelli.
Skýrsluna má finna hér.

