Fréttir
Alvarlegt flugatvik TF-LLA (Boeing 767-300) þann 17. september 2006.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið út skýrslu um flugatvik TF-LLA um 700 Nm vestan við LPAZ út. Flugmenn á TF-LLA finna rafmagnslykt í flugstjórnarklefa og ákveða að halda flugi áfam þar sem lyktin hvarf. Skömmu síðar finnur áhöfnin enn á ný rafmagnslykt. Áhöfnin setur upp súrefnisgrímur og er flugvélinni snúið til Point á Pitre flugvallar. Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi (BEA) rannsakaði atvikið og skilaði skýrslu sinni á frönsku. Helstu atriði skýrslunnar hafa verið þýdd og má finna þýðinguna hér.

