Fréttir
RNF hefur tekið til rannsóknar flugslys er varð á Patreksfirði þann 4. júní 2008.
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur tekið til rannsóknar flugslys sem varð á Patreksfjarðarflugvelli þann 4. júní síðastliðin. Flugmaður ásamt einum farþega voru í flugtaki á flugbraut 14 á flugvélinni G-AYFP, sem er af gerðinni Jodel D140 (Mousquetaire), um klukkan 17:00. Í flugtaksbruninu missti flugmaðurinn stjórn á flugvélinni og hafnaði hún utan flugbrautarinnar. Sakaði hvorki flugmann né farþega. Aðalhjólabúnaður flugvélarinnar brotnaði og vélin skemmdist á loftskrúfu, hreyfilhlífum, hreyfli, og vinstri væng. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands mældist mesti vindur á Patreksfirði 17 hnútar og vindhviður 27 hnútar úr norðaustri (60 gráður) klukkan 17:00.



