Fréttir
RNF rannsakar alvarlegt flugatvik er varð við Stíflisdalsvatn þann 27. júní 2008.
RNF hefur tekið til rannsóknar alvarlegt flugatvik er varð þegar TF-KAJ, sem er tveggja sæta flugvél af gerðinni Piper Super Cub, nauðlenti við Stíflisdalsvatn á Mosfellsheiði. Flugmenn flugvélarinnar voru að æfa snertilendingar á lendingarstað við Stíflisdalsvatn þegar skyndilega hreyfillinn stöðvaðist. Flugvélinni var nauðlent í mólendi skammt frá lendingarstaðnum. Tókst lendingin vel og sakaði flugmennina ekki.

