Fréttir
RNF rannsakar alvarlegt flugatvik TF-FTU (Piper PA-44)
RNF hefur lokið vettvangsrannsókn á alvarlegu flugatviki er varð þegar TF-FTU, sem er af gerðinni Piper PA-44 Seminole, missti afl á öðrum hreyfli. Flugmaður ásamt einum farþega hugðist fljúga flugvélinni frá Reykjavíkurflugvelli til Hornafjarðar og lenda þar. Stuttu eftir flugtak varð flugmaðurinn var við að hægri hreyfill missti afl. Flugmaðurinn lýsti yfir neyðarástandi og ákvað að lenda aftur á Reykjavíkurflugvelli. Rannsóknin beinist að eldsneytiskerfi flugvélarinnar ásamt veðurfarslegum þáttum.

