Fréttir
NTSB gefur út skýrslu um N60842 sem flaug inn í ísingarskilyrði og fórst suður af Íslandi.
NTSB hefur gefið út skýrslu um flugslys N60842 sem fórst um 120 sjómílur suðaustur af Vík í Mýrdal. Rannsóknarnefnd flugslysa skipaði trúnaðafulltrúa við rannsóknina sem stýrt var að NTSB.
Þann 21. febrúar 2008, um kl. 11:39, er talið að Piper PA-28-161 N60842 hafi farist yfir opnum sjó um 120 mílur suðaustur af Vík í Mýrdal. Talið er að flugmaðurinn hafi látist. Flugvélin fór í loftið frá Reykjavík klukkan 09:30 og áætlaði flugmaðurinn að ferjufljúga flugvélinni til Wick í Skotlandi.
Tilgangur flugsins var að ferja flugvélina frá Bandaríkjunum til viðskiptavinar í Þýskalandi. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu sem sá um ferjuflug flugvélarinnar þá var tveimur flugvélum flogið í samfloti til Reykjavíkur, umræddri Piper og Cessna flugvél. Flugmaður Cessna flugvélarinnar hélt áfram ferð sinni daginn eftir. Flugmanni Piper flugvélarinnar hafði verið ráðlagt að fresta brottför þar til ísingarskilyrði væru ekki á fyrirhugaðri flugleið. Flugmaður Piper flugvélarinnar beið í þrjá daga í Reykjavík. Daginn sem slysið átti sér stað tók flugmaðurinn ákvörðun um að fljúga til Wick í Skotlandi. Að því að hermt er lenti flugmaðurinn í ísingu og hreyfill missti afl. Um klukkan 11:39 barst merki frá neyðarsendi flugvélarinnar. Mikil leit var gerð að flugmanninum og flugvélinni en ekkert fannst.
Skýrslu NTSB má finna hér.

