Fréttir
Flugslys TF-GUN (Cessna 180) í Vopnafirði þann 2. júlí 2009.
Fréttatilkynning
Rannsóknarnefnd flugslysa vinnur að rannsókn á flugslysi flugvélarinnar TF-GUN er brotlenti í framanverðum Selárdal í Vopnafirði á fimmta tímanum þann 2. júlí. Flugvélin er af gerðinni Cessna 180 og er fjögurra sæta einkaflugvél. Tveir menn voru um borð og sátu þeir í framsætum flugvélarinnar.
Flugvélinni hafði verið flogið frá Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ til Vopnafjarðar-flugvallar fyrr um daginn. Flugáætlun flugvélarinnar var svo frá Vopnafirði klukkan 16:00 til Tungubakkaflugvallar í Mosfellsbæ. Flugtak frá Vopnafjarðarflugvelli var skömmu fyrir klukkan 16:00.
Flugvélinni var flogið að Veiðihúsinu Hvammsgerði í Selá. Vettvangsrannsókn bendir til þess að flugvélinni hafi verið flogið á rafmagnsstreng með þeim afleiðingum að hún brotlenti. Slysið var tilkynnt til Neyðarlínu klukkan 15:58. Í slysinu lést annar maðurinn og hinn er mikið slasaður og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Rannsóknarnefnd flugslysa vinnur að vettvangsrannsókn í Selárdal og mun flytja flak flugvélarinnar til Reykjavíkur til frekari rannsóknar.
Aðrar upplýsingar:
TF-GUN er skráð til einkaflugs. Flugvélin er fjögurra sæta (þrír farþegar). Lofthæfiskírteini flugvélarinnar er í í gildi til 1. maí 2010. Ársskoðun flugvélarinnar var síðast framkvæmd 8. maí 2009.

