Fréttir
Alvarlegt flugatvik TF-KAJ (Piper Super Cub) við Stíflisdalsvatn þann 27. júni 2008
RNF hefur gefið út skýrslu um flugatvik TF-KAJ við Stíflisdalsvatn þann 27. júni 2008. Flugvélinni var nauðlent eftir að hreyfill flugvélarinnar stöðvaðist. Rannsóknarnefnd flugslysa beinir tveimur tilmælum til flugmanna í kjölfar atviksins:
-
Rannsóknarnefnd flugslysa beinir því til flugmanna að setja blöndungshitara á að fullu áður en afl er dregið af hreyfli svo hiti frá hreyfli nýtist sem best við að bræða ís sem mögulega hefur safnast fyrir í blöndungi.
-
Rannsóknarnefnd flugslysa hvetur flugmenn til að haga flugi í umferðahring með þeim hætti að þeir geti örugglega svifið inn til lendingar ef hreyfill stöðvast.
Skýrsluna má finna hér.

