Sigurður Líndal
Prófessor
Sigurður Líndal f. 2. júlí 1931. Stúdent MR. 1951. BA-próf í latínu og mannkynssögu 1957, embættispróf í lögfræði, cand. jur. 1959 og cand. mag. (M.A)-próf í sagnfræði 1968. Lagði stund á réttarsögu við Háskólann í Kaupmannahöfn 1960, við Háskólann í Bonn 1961-62 og við University College í Oxford 1998 og 2001. Einkaflugmannspróf 1967.
Dómarafulltrúi við embætti Borgardómara í Reykjavík 1959-60 og 1963-64. Hæstaréttarritari 1964-72. Lektor við lagadeild Háskóla Íslands 1967, prófessor 1972-2001. Gistiprófessor við University College í London haustið 1982. Í skattsektanefnd 1965-79. Dómari í Félagsdómi 1974-80. Forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands 1976-2001. Forseti Hins íslenzka bókmenntafélags 1967 og síðan. Í stjórn Stofnunar Árna Magnússonar 1996-2006 . Ráðunautur landstjórnar Færeyja í sjálfstæðismálum 1997-2000. Formaður Sérstakrar rannsóknarnefndar til að rannsaka flugslys í Skerjafirði 7. ágúst 2000 sem starfaði 2002-2005. Ritstjóri Sögu Íslands 1972 og síðan. Í ritstjórn Nordisk administrativt tidsskrift 1984-99. Ritstjóri Skírnis (ásamt Kristjáni Karlssyni) 1984-86. Prófessor við Háskólann á Bifröst 2007 og síðan. Varamaður í Flugslysanefnd 2009 og síðan. Stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Hefur setið í ýmsum nefndum og stjórnum, þar á meðal dómnefndum.
Höfundur ritsmíða á sviði lögfræði, sagnfræði og stjórnmálafræði.
K.: María Jóhannsdóttir, BA (Hons) í hagfræði og félagsfræði frá Háskólanum í Manchester, fv. skrifstofustjóri heimspekideildar Háskóla Íslands, sagnfræðinemi við Háskóla Íslands. Tvær dætur.
