Þormóður Þormóðsson

B.Sc. í flugrekstrar og tæknistjórnun

Stúdent frá Flensborgarskóla 1987, B.Sc. gráða í flugrekstrar og tæknistjórnun frá Embry Riddle Aeronautical University 1993.

Einkaflugmanns próf frá flugskólanum Flugtak 1987, atvinnuflugpróf og blindflugsréttindi frá Phoenix College of Aeronautics 1993. Bóklegt próf í atvinnu og blindflugi frá Flugskóla Íslands 1995.

Flugvirkjaréttindi frá Embry Riddle Aeronautical University 1991 og sveinspróf í flugvirkjun 1998.

Námskeið til tegundarréttinda á Boeing 737 hjá Flugleiðum 2000. Handhafi skírteinis flugvéltæknis frá Flugmálastjórn Íslands með réttindi á Boeing 737-300/400 og árskoðunarréttindi lítilla loftfara.

Námskeið hjá Flugöryggissamtökum Evrópu (JAA) 1995-1998 í JAR 145 (kröfur um viðhaldsstöðvar), JAR-OPS (Kröfur um flugrekstur) og JAR-OPS M (Viðhaldshluti krafna um flugrekstur).

Ýmis námskeið í gæðastjórnun hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands 1997. Námskeið í gæðastjórnun (Total Quality Management for Airlines Maintenance and Operations) hjá MCI Training Concepts 1997 og námskeið í gæðastjórnun (Quality Management for Airline Operators) hjá Nigel Bauer and Associates 1999.

Námskeið í stjórnun flugslysarannsókna hjá Cranfield University, College of Aeronautics og Rannsóknarnefnd flugslysa í Englandi 2001. Námskeið í rannsóknum á þyrluslysum, mannlegum þáttum (Human Factors) og hverfihreyflum (turbine engines) hjá Southern California Safety Institute í Bandaríkjunum 2003 til 2005.

Eftirlitsmaður í lofthæfideild, loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar Íslands 1994 og 1997.

Starfaði í gæðadeild Flugfélagsins Air Atlanta, í gæðadeild og sem flugvéltæknir hjá Flugleiðum 1997 og 1998.

Var gæðastjóri hjá Íslandsflugi 1998 til 31. ágúst 2001.

Skipaður formaður og rannsóknarstjóri Rannsóknarnefndar flugslysa (RNF) 1. september 2001.

Skipaður forstöðumaður og rannsóknarstjóri RNF 1. september 2004.

Í leyfi frá RNF frá 1. september 2005 til 31. ágúst 2010 vegna starfa hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) sem tæknilegur sérfræðingur (Technical Officer) í rannsóknum flugslysa og í gæðaúttektum samkvæmt „Universal Safety Oversight Audit Programme (USOAP)“ stofnunarinnar.




Skjaldamerki Íslands

Þetta vefsvæði byggir á Eplica